Motocrossáhugi í Hellskóla

Fréttir

Á síðasta skólaári var boðið upp á það að nemendur sem ættu mótorhjól mættu koma með það í skólann og sýna og segja frá hjólinu og sportinu. Uppátækið heppnaðist vel og í dag var leikurinn endurtekinn. Nokkrir nemendur komu (með aðstoð foreldra) með hjól sín í skólann og fengu þeir sem áhuga hafa á sportinu að skoða og máta hjólin og spyrja um allt sem þeim lá á hjarta sem tengdist hjólunum og íþróttinni. Hjólin í dag voru af öllum stærðum og gerðum og áhugi nemenda leyndi sér ekki. Að því sögðu er gaman að segja frá því að UMF Hekla hefur ráðið til sín motocross þjálfara sem mun bjóða upp á æfingar í allt sumar.