Markaðsdagur Bæjarhellunnar var haldinn föstudaginn 29. maí milli 11:00-13:00 í nýja matsal skólans. Fjöldi fólks kom á staðinn og upplifði afrakstur 3 daga vinnu í skólanum. Hið ýmsa var framleitt en sem dæmi má nefna alls kyns gómæstt bakkelsi á kaffihúsinu, hesta á priki en þar var einnig boðið upp á þrautabraut á hestum á priki, trjáplöntur og sumarblóm, bíósýningar fréttastofunnar og grínmyndband BH-studios, fjölnota pokar, skrúbbar, töðugjaldaskraut, sumarfrís afþreying og margt fleira.
Ótrúlega vel heppnuð Bæjarhella og markaðsdagur og erum við strax farin að láta okkur hlakka til Bæjarhellu næsta skólaárs.
Gaman er að segja frá því allir nemendur skólans gáfu 100 hellur af launum sínum til góðgerðarmála og einnig var tekið á móti frjálsum framlögum. Samtals söfnuðust 49.100 hellur sem samsvarar 49.100 krónum. Bæjarhelluráð valdi góðgerðarmál til að styrkja og mun þessi upphæð renna til Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Lundar á Hellu.
Fullt af myndum frá Bæjarhellunni eru komnar inn á heimasíðu skólans.
