Á dögunum barst Grunnskólanum Hellu vegleg gjöf frá kvenfélögum sveitarfélagsins. Kvenfélögin Unnur og Sigurvon komu færandi hendi og gáfu tónmenntastofu skólans þrjá nýja rafmagnsgítara og einn rafmagnsbassa ásamt fylgihlutum.
Þau hljóðfæri sem skólinn átti eru komin vel til ára sinna og því mikill fengur fyrir okkur að fá svo rausnarlega gjöf sem nýtast mun tónmenntakennslu í skólastarfinu næstu árin.
Bæjarhellubandið fékk svo þann heiður að vígja nýju gítarana og bassann á Bæjarhellunni sem fram fór föstudaginn 29. maí s.l.
Á meðfylgjandi myndum má sjá formenn kvenfélaganna, Helgu Dagrúnu Helgdóttur og Birnu Guðjónsdóttur ásamt nemendum, og meðlimum Bæjarhellubandsins, með nýju hljóðfærin.
Við þökkum Kvenfélögunum Unni og Sigurvon kærlega fyrir gjafmildina.





