Skólasetning Grunnskólans Hellu var haldin í sal nýja skólans klukkan 14:00 í dag. Að skólasetningu lokinni komu nemendur og starfsmenn 1. bekkjar upp á svið þar sem tekin var af þeim mynd og fóru bekkirnir svo koll af kolli inn í sínar heimastofur með umsjónarkennurunum sínum. Mikil tilhlökkun var meðal nemenda og starfsfólks nú í upphafi nýs skólaárs og hlökkum við til samstarfsins í vetur.
Á meðfylgjandi mynd má sjá 1. bekk með umsjónarkennaranum sínum, Erlu Brá og stuðningsfulltrúa bekkjarins Guðríði.
