Treyjudagur

Fréttir

Næsta föstudag, 4. september verður treyjudagurinn haldinn í fyrsta skipti á Íslandi. Börn með krabbamein, styrktarfélag standa að deginum og er markmiðið að einstaklingar og hópar klæðist sinni uppáhalds treyju og sýni þannig börnum með krabbamein stuðning.
Við í Grunnskólanum Hellu tökum að sjálfsögðu þátt og hvetjum við alla til að mæta í sinni uppáhaldstreyju á föstudaginn.
Við minnum jafnframt á að skóla lýkur kl. 10:50 þennan sama dag vegna fræðsludags Rangárþings ytra.