„Bókahraðstefnumót“ á degi læsis


Í tilefni af Degi læsis, þann 8. september síðastliðinn stóðu umsjónarkennarar nemenda á unglingastigi fyrir „Bókahraðstefnumóti“ í fyrstu tveimur kennslustundunum þann daginn. Markmiðið var að nemendur kynntu eina af sínum uppáhaldsbókum fyrir samnemendum sínum og reyndu að vekja áhuga þeirra á að lesa bókina. Með þessu fengu nemendur tækifæri til að deila lestrarupplifun sinni og kynnast nýjum bókum í gegnum jafningja sína.

Verkefnið heppanaðist mjög vel og voru nemendur og kennarar ánægðir að því loknu

Hér má sjá fleiri myndir frá „Bókahraðstefnumótinu“

Fleiri fréttir