Samsafn á bókasafninu

SamSafn er samvera, fræðslu- og umræðuvettvangur fyrir nemendur á unglingastigi sem fram fer í hádeginu annan hvern fimmtudag á bókasafni skólans.
Fyrsta SamSafn vetrarins var í dag þar sem haustferðir voru ræddar. Nemendur sögðu m.a. frá eftirminnilegum haustferðum og eru spenntir fyrir komandi haustferð í Þórsmörk sem farin verður í næstu viku. Þá voru nemendur sammála um að eitt af því skemmtilegasta við haustferðir er að gista yfir nótt.
Það var frábær mæting á SamSafnið í dag og við getum verið svo stolt af þessum frábæru unglingum sem við eigum.

Fleiri fréttir