
Miðvikudaginn 23. september fóru öll skólastig grunnskólans í haustferðir. Yngsta stig fór að Lækjarbakka, landareign Fúsa húsvarðar þar sem þau fengu að vaða í læknum, spila fótbolta á grasflötinni og í lokin gengu nemendur og starfsfólk yfir í höfuðstöðvar Snilldarverks. Þar fengu nemendur að skoða hin ýmsu tæki en mest spennand var hin fræga og bleika Tútta.
Miðstigið fór að Laugarvatni, kíkti í Laugarvatnshelli og einhverjir nemendur tóku þar létta fjallgöngu. Að því loknu var stefnan tekin á Þingvelli þar sem nemendur skoðuðu meðal annars Lögberg og Drekkingarhyl. Á heimleiðinni var stutt ísstopp á Selfossi.
Elsta stigið fór að Básum í Þórsmörk og gisti þar eina nótt. Þar var ýmislegt brallað svo sem fjallganga, grillpartý og kvöldvaka.
Skólaferðir sem þessar eru mikilvægar fyrir nemendur þar sem þeir kynnast á annan hátt, fá tækifæri til að kynnast nemendum í öðrum bekkjum betur sem og starfsfólki. Öll komu stigin alsæl heim eftir frábærar ferðir.
Við hvetjum ykkur til að kíkja á myndasíðu skólans en þar er að finna fullt af skemmtilegum myndum frá öllum ferðunum.