
Þann 7. október, fór menningarráð Grunnskólans Hellu, þau Sigurður Þór 9. bekk, Ronja Rún 8. bekk og Edda Margrét 7. bekk ásamt Mögdu, á upphafshátíð menningartengla og menningarráða HARK! í Salnum í Kópavogi.
HARK! snýst um að efla aðgengi barna og ungmenna að tónlist, listum og menningu og ekki síður um að gefa nemendum sjálfum rödd og raunverulegt hlutverk í menningarstarfi skólans.
Á dagskránni var meðal annars tónlist, samtal, fræðsla og fullt af hugmyndum og innblæstri. Menningarráð skólans mun geta tekið þátt í að móta menningarstarfið, komið með hugmyndir að viðburðum, tekið á móti listafólki og hjálpað til við að kynna það sem verður á döfinni.
Við erum spennt að sjá hvað menningarráðið okkar tekur sér fyrir hendur og hlökkum til fjölbreytts og skapandi menningarstarfs í skólanum.
Hér má sjá fleiri myndir frá viðburðinum.