
Þann 9. október ár hvert er hugleiðsludagur unga fólksins og var þetta í ellefta sinn núna í ár sem dagurinn er haldinn. Allir nemendur og starfólk skólans okkar tók þátt síðastliðinn föstudag þegar við komum saman og hugleiddum í 3 mínútur í sal skólans undir handleiðslu Lovísu.
Hugleiðsludagurinn hefur það markmið að veita börnum tækifæri til að læra meira um hugleiðslu og fá að æfa sig. Eitt af markmiðum dagsins er að sameina ungt fólk á aldrinum 2 – 18 ára í 3 mínútna hugleiðslu í skólum hérlendis. Þetta er kærkomin aðferð við að lægja öldur hugans, auka sjálfsmildi, finna hjartamiðun og koma í innri kyrrð.
Hugleiðsla er leið til að ma. skapa innri frið, finna innri náttúrulega gleði, vinna úr tilfinningum, kvíða, streitu og vanlíðan hjá ungu fólki og gera þau að sterkari einstaklingum.
Hægt er að lesa meira um hugleiðsludaginn hér
Hér má sjá fleiri myndir frá hugleiðslunni