Skemmtileg bókakynning og söngur

Felix Bergsson kom í skólann okkar í dag og kynnti meðal annars fyrir okkur nýjustu bók sína Leynifélag í lífsháska. Heimsóknin var ætluð nemendum í 1. – 7. bekk en einnig var skólahóp boðið að koma. Felix var mjög skemmtilegur og náði vel til barnanna. Hann sagði okkur frá fyrri bókum sínum sem mörg hver könnuðust við sem honum þótti vænt um að heyra. Einnig las hann upp úr köflum nýju bókarinnar sem þótti mjög spennandi og endaði hann svo heimsóknina á því að syngja fyrir okkur tvö lög. Það má alveg reikna með því að nýja bókin hans verði á einhverjum jólagjafaóskalistum fyrir komandi jól.

Við þökkum Felix kærlega fyrir skemmtilega heimsókn og vonum svo sannarlega að hann skrifi fleiri bækur og komi aftur til okkar.

Hér má sjá nokkrar myndir frá heimsókninni.

Fleiri fréttir