
Þetta árið ætlar 4.bekkur að bjóða upp á æsispennandi jólaþætti í fjórum hlutum sem koma út í lok hverrar viku fram að jólaskemmtun. Lokaþátturinn verður svo sýndur á jólaskemmtuninni sjálfri og því mælumst við til þess að allir fylgist með frá upphafi og horfi á alla þættina fram að sýningu.
Börnin í 4.bekk komu flest öll að hugmyndavinnunni við vinnslu þáttanna en þeir fjalla um hefðbundið skólalíf í Grunnskólanum Hellu eða þar til einn daginn lendir geimskip á skólalóðinni og út stígur geimvera. En er allt eins og það sýnist?
Hér er fyrsti þáttur af fjórum, góða skemmtun 🙂