
Svakalega lestrarkeppin hófst formlega í morgun og stendur til 6.október. Grunnskólinn okkar er skráður til leiks og snýst keppnin um að nemendur í 1.- 7.bekk lesi sem mest og skrái lesnar mínútur í þar til gert hefti.
Ég vil hvetja alla foreldra, ömmur og afa, frændur, frænkur, vini og vinkonur til að taka þátt og styðja við krakkana með lestri. Það getum við t.d. gert með því að lesa með börnunum heima, lesa fyrir þau og lesa sjálf okkur til gamans því við erum jú fyrirmyndir þeirra ![]()
ÁFRAM LESTUR!