Söngstund og skemmtileg heimsókn

Fimmtudaginn 1. október var skemmtileg söngstund fyrir 1. – 4. bekk í kringlu skólans. Nemendur sátu prúðir ásamt kennurum sínum og sungu nokkur vel valin lög undir leiðsögn Herdísar Rútsdóttur. Þessi fyrsta söngstund skólaársins heppnaðist vel og óskaði tónlistarkennarinn eftir óskalögum frá nemendum fyrir næstu söngstund. Börnin voru mjög spennt fyrir þeirri nýbreyttni.

Þennan sama dag fengu nemendur skóladagheimilisins skemmtilega heimsókn þegar Hrafnkell Frosti í 8. bekk kom óvænt og spilaði nokkur lög á harmonikkuna sína. Öll voru börnin og starfsfólkið með stjörnur í augunum yfir þessum flotta strák. Hver veit nema eitthvert þessara barna eigi eftir að spila á harmonikku í framtíðinni.

Fleiri fréttir