Sveitarstjóra afhentur undirskriftalisti

Í dag, þann 14. október, afhentu nemendur 3. bekkjar sveitarstjóra undirskriftalista fyrir hönd allra nemenda skólans. Um var að ræða áskorun frá nemendum þess efnis að klára skólalóðina okkar. Undanfarin ár hefur skólalóðin verið í frekar slæmu ástandi vegna mikilla framkvæmda á svæðinu. Í áskoruninni komu fram tillögur nemenda að úrbótum og vakti athygli að öll börn skólans höfðu skrifað undir. Það er nemendum mikið hjartans mál að skólalóðin sé örugg og vel búin leiktækjum svo nemendur hafi eitthvað við að vera í frímínútum. Sveitarstjórinn tók vel á móti krökkunum og kennurum þeirra og er það von okkar að brugðist verði skjótt við.

Á meðfylgjandi mynd má sjá nokkra nemendur með ásamt Eiríki sveitarstjóra og áskoruninni. Fleiri myndir má finna á myndasíðunni okkar.

Fleiri fréttir