1980 árgangur kom í heimsókn.

Liðna helgi komu nokkrir fyrrverandi nemendur skólans í heimsókn og fengu að skoða sig um. Að sjálfsögðu fóru þau um allan skólann, bæði gamla skólann þar sem þau slitu barnsskónum en einnig kíktu þau á nýbygginguna. Þeim þótti gaman að sjá hvernig sum rými innan skólans hafa fengið ný hlutverk með tilkomu nýju byggingarinnar og sömuleiðis þótti gaman að skoða allar árgangamyndirnar sem hanga á veggjum skólans. Það var virkilega skemmtilegt að heyra þau rifja upp allar þær góðu minningar sem þau eiga frá skólagöngu sinni í Helluskóla. Það er alltaf gaman að taka á móti „gömlum“ nemendum og hvetjum við fleiri árganga til að hafa samband og koma í heimsókn.

Á meðfylgjandi mynd má sjá þau:

Hannes Árnason, Vigdísi Tryggvadóttur, Kristínu Heiðu Þórisdóttur, Brynhildi Jensdóttur, Sigurð Óskarsson, Sigurð Óla Ingvarsson, Hannes Örn Kjartansson, Jónu Katrínu Guðnadóttur, Friðsemdi Thorarensen, Írisi Þorsteinsdóttur og Heiðbjörtu Helenu Karlsdóttur

Við þökkum þessum flotta hópi kærlega fyrir komuna.

Fleiri fréttir