
Rithöfundurinn Eygló Svala kom í heimsókn til okkar fimmtudaginn 22. október. Hún heimsótti nemendur í 1. – 4. bekk sem hlustuðu af miklum áhuga þegar hún las úr bók sinni Krummi og Kría. Nemendur spurðu skemmtilegra spurninga og ýmsar umræður sköpuðust. Það er gaman að segja frá því að von er á framhaldsbók um Krumma og kríu núna í nóvember. Eygló Svala hafði orð á því hvað nemendur væru kurteisir og hún var þakklát fyrir að fá að koma í skólann okkar.
Við bíðum spennt eftir næstu bók og þökkum Eygló kærlega fyrir að koma til okkar.
Hér má sjá nokkrar myndir
ÁFRAM LESTUR