
Föstudaginn 23. október fóru allir nemendur skólans í trjáplöntun í blíðskaparveðri í Melaskógi. Vinabekkir fóru saman og voru eldri nemendur duglegir að aðstoða þá yngri bæði við gönguna í skóginn en einnig við trjáplöntunina sjálfa. Melaskógur er 20 ára í ár og að því tilefni fengu allir nemendur lummur eftir trjáplöntunina.
Hér má sjá myndir frá frábærlega vel heppnuðum degi.