
Eins og margir vita hefur nemandi í skólanum okkar, Dagmar Daníelsdóttir verið að selja armbönd fyrir Kraft sem er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Málefnið stendur henni nærri þessa dagana.
Í dag tóku allir nemendur og starfsfólk skólans sig saman og perluðu armbönd til að styðja við bak Dagmarar og fjölskyldu. Skólinn fékk perlur hjá Krafti og munum við í framhaldinu selja armböndin. Allur ágóði sölunnar mun að sjálfsögðu renna til Krafts.
Smá fróðleikur um armbandið:
Perluarmbandið í ár er hannað af Írisi í Veru Design.
Rósagyllti liturinn, sem minnir á kopar, táknar styrk, hlýju og heilun, en kopar hefur lengi verið tengdur við endurnýjun og lífsorku.
Glæru perlurnar minna okkur á að við erum tær og heil í kjarna okkar, jafnvel þegar við stöndum frammi fyrir erfiðum áskorunum eins og veikindum.
Armbandið er tákn vonar, samstöðu og innri krafts.
Öll armböndin eru búin til af kröftugum sjálfboðaliðum sem perla til að hjálpa okkur að hjálpa öðrum.
Þeir sem vilja kynna sér starfsemi Krafts betur geta gert það hér
og myndir frá deginum má finna hér